T&C

Skilmálar og skilyrði

Þetta er smáa letrið, þú veist, lagaskilmálarnir. Lestu þá endilega yfir áður en þú hyggur á ævintýraför með okkur.

T&C’s

Smáa letrið

Með því að opna, vafra, nota og / eða ljúka við pöntun í gegnum (farsíma) vefsíðu okkar viðurkennir þú og samþykkir að hafa lesið, skilið og samþykkt skilmálana hér að neðan. Þessi skilmálum og skilyrðum munu breytast af og til og eiga við um alla okkar þjónustu.

Zipline Ísland ferðasali dagsferða og býður upp á zipline ævintýraferðir í Vík í Mýrdal. Hægt er að bóka beint í gegnum Zipline Ísland og / eða hvaða þá vefsíðu sem Zipline Ísland gerir þjónustu sína aðgengilega. Ef þú ert í vandræðum með að panta á vefsíðu Zipline Iceland, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst.

Giljagleði ehf. (Zipline Ísland) áskilur sér rétt til að breyta ferðaáætlunum og / eða tímaáætlunum ef þörf krefur, vegna slæms veðurs og / eða annarra skyldra aðstæðna. Zipline Ísland tekur ekki ábyrgð á tjóni, tapi, slysi,  veikindum, breytingum á ferðaáætlunum eða áætlunum af völdum veðurs, verkfalla eða einhvers annars atburðar sem Zipline Ísland hefur ekki stjórn á, svo sem flug tafir, flutning á fundarstað, breytingar eða afpantanir, meiðsli, veður, náttúruhamfarir o.fl. og / eða önnur ófyrirsjáanleg mál. Þú berð ábyrgð á því að veita Zipline Íslandi réttar upplýsingar  svo að við getum haldið þér upplýst ef breytingar verða á bókun þinni.

 

 

Verð
Tilboð & afsláttarkóðar
Vinsamlegast hafðu í huga að ekki er hægt að nota sérstök tilboð, svo sem afsláttarkóða við pöntun eftir að kaup hafa farið fram, svo sem í formi endurgreiðslu. Afsláttarkóða eða önnur sértilboð verður að færa í viðkomandi reit í greiðsluferlinu við bókin til að vera nothæfur.
Endurgreiðslur & afbókanir

Með því að bóka ferð annað hvort beint á vefsíðu Zipline Ísland og / eða aðra vefi sem selja þjónustu Zipline Ísland samþykkir þú allar skilmála sem varða greiðslu, endurgreiðslu- og afbókunarstefnu okkar fyrir alla aðila sem bókaðir eru og borgað fyrir í þínu nafni.

Allar afbókanir og beiðnir um endurgreiðslu ætti að senda til okkar skriflega á zipline@zipline.is  Við erum meðvituð um að áætlanir breytast og stundum er óumflýjanlegt að breyta eða afbóka. Í þeim tilvikum reynum að vera sveigjanleg en hafðu í huga að afbókun á síðustu stundu leiðir ekki einungis til tekjutaps fyrir okkur heldur kemur í veg fyrir að við náum að fá bókanir frá öðrum viðskiptavinum. Eftirfarandi skilmálar eiga við um afpantanir viðskiptavina.

  • Greitt er 100% af gjaldi ferðar er innheimt ef afbókað er 12 klukkustundum eða skemur fyrir áætlaða ferð.
  • Greitt er 50% af gjaldi ferðar ef afbókað er 3 dögum (72 klst.) eða skemur fyrir áætlaða ferð.
  • Ef þú mætir ekki í fyrirfram bókaða ferð eða mætir of seint og ferðin er lögð af stað er engin endurgreiðsla gefin.
Tryggingar
Við erum með öryggið í forgangi. Þó að vel þjálfaðir og reyndir leiðsögumenn okkar geri ávallt sitt besta til að tryggja að allir sem eru með okkur í ferð upplifi sig örugga og reynsluna skemmtilega, þá eru litlar líkur á að slys geti orðið sem gæti þurft læknishjálp. Þess vegna, eins og með allar ferðir, mælum við eindregið með því að þú kaupir ferðatryggingu í heimalandi þínu sem nær yfir kostnað ef þú verður fyrir meiðslum eða ef þú þarft að hætta við pöntunina með stuttum fyrirvara.
Bækistöð

Bækistöðin okkar er að Víkurbraut 5, 870 Vík í Mýrdal. Sem kaupandi ferðarinnar berð þú ábyrgð á því að koma á staðinn tímanlega fyrir brottför í upplifunina þína og vera tilbúin á réttum tíma á réttum stað. Zipline Ísland veitir þér upplýsingar um hvar við hittumst á miðanum sem er sendur á netfangið sem gefið var upp við bókun. Ef þú ert ekki viss um hvenær þú átt að koma fyrir áætlaða ferð þína, vinsamlegast hafðu samband við okkur með tölvupósti.

Útivist
Nota skal viðeigandi skófatnað, helst gönguskó með stuðningi við ökkla og viðeigandi útivistarfatnað. Við áskiljum okkur rétt til að neita gestum um þátttöku í ferðinni sem ekki eru klæddir á viðeigandi hátt eða í óhentugum skóm þar sem það mun setja skemmtun og öryggi gestsins í hættu. Flétta þarf sítt hár eða setja í lágan hnút í hnakka til að það flækist ekki í búnaði.

Gestum / viðskiptavinum er bent á að öll starfsemi fari fram að öllu leyti á eigin ábyrgð og þeir verða að hegða sér og hlýta reglum starfsmanna Zipline Ísland. Gestir taka sjálfir ábyrgð á eigin öryggi.
Takmarkanir
Allir gestir / viðskiptavinir okkar verða að hafa náð 8 ára aldri og vega á bilinu 30 til 120 kg. Börn yngri en 16 ára þurfa að vera í fylgd fullorðins. Við krefjumst þess að gestir / viðskiptavinir okkar séu hæfir til útivistar og geti gengið á ójöfnu yfirlagi, 3 km. Barnshafandi konur geta ekki tekið þátt í neinum zipline ferðum.

Allar ævintýraferðir og útivist bjóða uppá ákveðna áhættu og tekur Zipline Ísland enga ábyrgð á slysum sem eru af völdum viðskiptavina eða rekja má til eigin athafna eða orsakast af þáttum sem við höfum ekki stjórn á. Með því að kaupa ferðina þína samþykkir þú þessi skilyrði, skilur afleiðingar þess og tekur ábyrgð á sjálfum þér í ferðinni. Þú gætir verið beðinn um að skrifa undir plagg þar sem Zipline Iceland afsalar sér allri ábyrgð á því sem gæti komið fyrir í ferðinni.

Zipline Ísland fagnar allri gagnrýni, bæði jákvæðum og neikvæðum þar sem það hjálpar okkur að bæta þjónustu okkar og árangur. Við kunnum að meta það ef þú gætir deilt reynslu þinni af ferðinni með okkur. Vinsamlegast hafðu í huga að allar kvartanir verða að berast Zipline Iceland innan 5 daga frá ferð. Annars eru mögulegar bætur fyrndar.

Höfundarréttur
Texti, grafík, merki, myndir og allt annað efni á www.zipline.is er í eigu Giljagleði ehf. og er öll afritun og dreifing bönnuð nema það hafi verið heimilað með skriflegu leyfi?
Trúnaður
Lög og reglur

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Dómsmál skal höfðað fyrir íslenskum dómstólum. Giljagleði ehf. (Zipline Iceland) áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er.