Úps!

Þú varst of lengi

VIÐ VÆRUM TIL Í AÐ ZIPPA MEÐ ÞÉR

Hafðu allt sem þarf til að bóka nálægt þér og reyndu aftur með því að smella á „Bókið hér“ hnappinn. Ef einvherjar spurningar vakna má endilega hafa samband við okkur.

Hringdu

(+354) 6988890

Sendu okkur línu

zipline@zipline.is

Opnunartímar

Sumar: 8 – 16
Vetur: 10 – 16

Kíktu við

Suðurvíkurvegur 5,
870 Vík í Mýrdal

Spurningar & svör

Algengar spurningar

Við fáum oft spurningar um zipplínurnar okkar og hvernig skuli klæðast við upplifunina. Gott er að hafa í huga að hér á Fróni er oft vindur og blautt en þó getur sólin glennt sig á bláum himni, allavega part úr degi. Við mælum með að klæðast eftir veðri daginn sem upplifunin er, vind- og/eða regnheld föt eru oft góð hugmynd. Gönguskór eða lokaðir (helst vatnsheldir) skór með grófum sóla eru svo algjör nauðsyn á okkar mjúka og blauta landslagi. Ef einhverjar frekari spurningar vakna tökum við glöð á móti spurningum á tölvupósti.
BARNIÐ MITT ER NÆSTUM 8 ÁRA, GETUR ÞAÐ KOMIÐ MEÐ?
Ef barnið þitt er orðið 30 kg., þrátt fyrir að ná ekki aldurstakmörkunum er það velkomið með í för.
ÉG ER MEÐ VANDAMÁL Í HNJÁM, KEMST ÉG MEÐ?
Við göngum upp- og niður í mót í alíslenskum móa, eftir kindastígum og engum stígum, ef þú treystir þér í þannig göngur er það ekkert mál. Þess má þó geta að göngurnar á milli línanna eru aldrei mjög langar.
Þarf ég húfu?
Þú færð hjálm, það er fínt að hafa húfu eða buff undir hjálminn að vetri til en ekki nauðsyn að sumri.
Þarf ég hanska?
Þú þarft aldrei að snerta zipplínurnar, festa þig á eða taka þig af. Því eru hanskar ekki nauðsynlegir en ef kalt eða blautt er í veðri er oft gott að geta hlýjað köldum fingrum í hönskum.

Hafðu sambanc